| | Gróðurhúsalofttegundir |
|---|
| Brennsla eldsneytis í stöðvum með heildarnafnvarmaafli sem er yfir 20 MW (að undanskildum stöðvum til brennslu á hættulegum úrgangi eða sorpi). | Koldíoxíð |
| Hreinsun jarðolíu. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á koksi. | Koldíoxíð |
| Brennsla eða glæðing, einnig kögglun, málmgrýtis (þ.m.t. brennisteinsgrýtis). Framleiðsla á hrájárni eða stáli (fyrsta eða önnur bræðsla), þ.m.t. samfelld málmsteypa, þar sem afkastagetan er meiri en 2,5 tonn á klukkustund. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla eða vinnsla á járnríkum málmum (þ.m.t. járnblendi) þar sem í rekstri eru brennslueiningar með heildarnafnvarmaafli sem er yfir 20 MW. Vinnslan tekur meðal annars til völsunarstöðva, ofna til endurhitunar, glæðingarofna, smiðja, málmsteypna og eininga til yfirborðsmeðhöndlunar og sýruböðunar. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á hrááli. | Koldíoxíð og perflúorkolefni |
| Framleiðsla á endurunnu áli þar sem í rekstri eru brennslueiningar með heildarnafnvarmaafli sem er yfir 20 MW | Koldíoxíð |
| Framleiðsla eða vinnsla á járnlausum málmum, þ.m.t. framleiðsla á málmblöndum, hreinsun, steypumótun o.s.frv., þar sem í rekstri eru brennslueiningar með heildarnafnvarmaafli (þ.m.t. eldsneyti sem er notað sem afoxunarefni) sem er yfir 20 MW | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á sementsgjalli í hverfiofnum með afkastagetu sem er yfir 500 tonnum á dag eða í annars konar ofnum þar sem framleiðsluafköstin eru yfir 50 tonnum á dag | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á kalki eða glæðing á dólómíti eða magnesíti í hverfiofnum eða annars konar ofnum sem hafa framleiðslugetu sem er yfir 50 tonnum á dag. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla glers, einnig glertrefja, þar sem bræðsluafköstin eru meiri en 20 tonn á dag | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á leirvörum með brennslu, einkum þakflísum, múrsteinum, eldföstum múrsteini, þaksteini og leirmunum eða postulíni, þar sem framleiðslugetan er yfir 75 tonnum á dag | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á einangrunarefni úr steinull þar sem notað er gler, berg eða gjall og bræðsluafköstin eru yfir 20 tonnum á dag. | Koldíoxíð |
| Þurrkun eða glæðing á gifsi eða framleiðsla á gifsplötum og öðrum gifsvörum þar sem í rekstri eru brennslueiningar með heildarnafnvarmaafli sem er yfir 20 MW | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á pappírsdeigi úr timbri eða öðrum trefjaefnum. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á pappír eða pappa þar sem framleiðslugetan er meiri en 20 tonn á dag. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla kinroks, sem felur í sér kolun á lífrænum efnum á borð við olíu, tjöru og sundrunar- og eimingarleif, þar sem í rekstri eru brennslueiningar með heildarnafnvarmaafli sem er yfir 20 MW. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á saltpéturssýru | Koldíoxíð og díköfnunarefnisoxíð |
| Framleiðsla á adipínsýru. | Koldíoxíð og díköfnunarefnisoxíð |
| Framleiðsla á glýoxali og glýoxýlsýru. | Koldíoxíð og díköfnunarefnisoxíð |
| Framleiðsla á ammoníaki. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á lífrænum íðefnum í lausu með sundrun, umbreytingu, oxun, að hluta eða til fulls, eða með svipuðum ferlum þar sem framleiðslugetan er meiri en 100 tonn á dag. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á vetni (H2) og tilbúnu gasi með umbreytingu eða hlutaoxun þar sem framleiðslugetan er meiri en 25 tonn á dag. | Koldíoxíð |
| Framleiðsla á natríumkarbónati (Na CO2) og natríumbíkarbónati (NaHCO3). | Koldíoxíð |
| Föngun gróðurhúsalofttegunda frá stöðvum sem falla undir þennan viðauka, í því skyni að flytja þær til geymslu í jörðu á stað sem hefur hlotið leyfi samkvæmt tilskipun 2009/31/E | Koldíoxíð |
| Flutningur gróðurhúsalofttegunda eftir leiðslum til geymslu í jörðu á stað sem hefur hlotið leyfi samkvæmt tilskipun 2009/ 31/ | Koldíoxíð |
| Geymsla gróðurhúsalofttegunda í jörðu á stað sem hefur hlotið leyfi samkvæmt tilskipun 2009/31/EB. | Koldíoxíð |